Ísraelar loka landamærum að Gaza 25. júní 2008 12:16
Ísraelar lokuðu í morgun landamærum sínum að Gaza-svæðinu. Það er svar við flugskeytaárás herskárra Palestínumanna þaðan á Suður-Ísrael í gær. Ísraelsmenn segja það gróft brot á vopnahlésskilmálum. Vopnahlé milli Ísraela og Hamas-liða á Gaza tók gildi á fimmtudaginn í síðustu viku. Það á að gilda í hálft ár hið minnsta. Opnað var fyrir hluta landamæranna að Gaza sem Ísraelar lokuðu fyrir nokkru vegna flugskeytaárása þaðan. Nauðsynjavörur tóku að berast íbúum Gaza á ný og allt virtist á réttri leið. í morgun lokuðu Ísraelar fyrir slíka flutninga vegna flugskeytaárásar liðsmanna Heilags stríðs á suðurhluta Ísraels frá Gaza í gær. Hún var hefnd fyrir árás Ísraelshers á Vesturbakkanum sem kostaði tvo liðsmenn samtakanna lífið. Engan sakaði í flugskeytaárásinni sem er sú fyrsta síðan vopnahléð tók gildi. Hamas-liðar eru ósáttir við ákvörðun Ísraela og segja hana brot á vopnahléssamkomulaginu. Ekki sé við Hamas að sakast með beinum hætti vegna árásarinnar í gær auk þess sem þeir hafi hvatt herskáa á Gaza til að hætta árásum. Heima fyrir eru ísraelsk stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki fengið það í gegn sem hluta af vopnahléssamkomulaginu að ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit yrði látinn laus úr haldi. Tvö ár eru í dag frá því Hamas-liðar rændu Shalit nærri landamærunum að Gaza. Mörg hundruð Ísraelar komu saman í Jerúsalem í gærkvöldi og létu óánægju sína í ljós. Ehud Olmert, forsætisráðherra, hefur átt undir högg að sækja vegna þessa og ásakana um spillingu. Í morgun tókst honum að koma í veg fyrir snemmbúnar kosningar. Ráðherrar í Verkamannaflokknum, samstarfsflokki í stjórn Kadímaflokks Olmets, höfðu hótað því að styðja vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar sem hefðu knúið fram kosningar. Liðsmenn Verkamannaflokksins hættu við það í morgun eftir að samið var um að leiðtogakjör færi fram í Kadímaflokknum í september. Stjórnmálaskýrendur segja nær öruggt að Olmert tapi þeirri kosningu.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Sjá meira