Erlent

Hjálpargögn til Gaza þrátt fyrir bann Ísraela

Hjálparsamtökin Rauði hálfmáninn hafa sent hjálpargögn af stað til Gaza-strandarinnar þrátt fyrir að Ísraelar hafi bannað nánast alla flutninga á hjálpargögnum á svæðið. Hjálparfarmur skips á vegum samtakanna inniheldur meðal annars lyf og mat fyrir nauðstadda á svæðinu.

Ísraelar viðurkenna ekki að neyðarástand ríki á Gaza. Aftur á móti segja forsvarsmenn hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna að ástandið á Gaza hafi sjaldan eða aldrei verið verra.

Ísraelar hafa bannað nánast alla flutninga til Gaza eftir að Hamas-samtökin tóku öll völd á svæðinu í júní 2007.

Rúmlega 1,4 milljón Palestínumanna býr á Gaza-ströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×