Játa að hafa skipulagt ódæðin 11. september 2001 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. desember 2008 08:19 Teikning frá réttarhöldunum sem sýnir sakborningana Walid bin Attash og Khalid Sheikh Mohammed í júní síðastliðnum. MYND/AFP/Getty Images
Fimm fangar í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu játa nú að hafa skipulagt hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001. Khalid Sheikh Mohammed og fjórir félagar hans, sem ákærðir eru fyrir að hafa komið að ódæðisverkunum 11. september, tóku óvænt nýja afstöðu í málinu fyrir herdómstól í Guantanamo-fangelsinu í gær og segjast nú játa að hafa verið lykilmenn við skipulagningu árásanna á New York og bandaríska varnarmálaráðuneytið sem verið höfðu í bígerð mánuðum saman á meðan þátttakendurnir lögðu meðal annars stund á flugnám til að geta komið verkinu í framkvæmd. Mikill úlfaþytur hefur ríkt um réttarhöldin yfir sakborningunum og er skemmst að minnast þess er höfuðsaksóknarinn í málinu sagði sig frá því í fyrra á þeirri forsendu að allur málatilbúnaðurinn væri pólitískur skrípaleikur af hálfu Bandaríkjahers. Heimildamaður hjá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna sagði í viðtali við CNN að játningin væri síðasti sigur stjórnar George Bush áður en hann lætur af embætti. Nokkrir aðstandenda fórnarlamba árásanna haustið 2001 voru viðstaddir þegar Mohammed og félagar hans höfðu uppi játningar sínar.
Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hnífjafnt til hægri og vinstri Innlent Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Innlent Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Innlent Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Innlent Fleiri fréttir Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Sjá meira