Verður West Ham aftur örlagavaldur Man Utd? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. maí 2008 13:26 Andy Cole og Gary Pallister eru hér heldur niðurlútir í lok leiks United og West Ham vorið 1995. Nordic Photos / Getty Images
Nú um helgina tekur Manchester United á móti West Ham í næstsíðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. United þarf nauðsynlega að vinna leikinn til að halda í við Chelsea sem mætir Newcastle á mánudaginn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem United mætir West Ham í mikilvægum leik undir lok tímabilsins en sagan sýnir að þótt West Ham hafi engra hagsmuna að gæta verði liðið allt annað en auðveld bráð. West Ham hefur unnið þrjá síðustu leiki sína gegn United og Alan Curbishley er með 100 prósent árangur gegn liðinu síðan hann tók við West Ham. West Ham hefur tvívegis komið í veg fyrir það að United yrði meistari og í fyrra bjargaði liðið sér frá falli með því að vinna United á Old Trafford.22. apríl 1992Alex Ferguson í viðtali árið 1992.Nordic Photos / Getty ImagesWest Ham var á botni deildarinnar og var þegar fallið úr ensku úrvalsdeildinni. Engu að síður vann West Ham sigur á United þökk sé marki Kenny Brown á 66. mínútu.Þetta þýddi að United varð einu stigi á eftir Leeds sem náði að halda toppsæti deildarinnar allt til loka.14. maí 1995United misst af sínum þriðja meistaratitli í röð er liðið gerði 1-1 jafntefli við West Ham á Upton Park.Michael Hughes kom West Ham yfir en Brian McClair jafnaði metin fyrir United í síðari hálfleik. Sigur hefði dugað liðinu til að verða meistari þar sem að Blackburn var að tapa á sama tíma fyrir Liverpool.Andy Cole fór hins vegar illa með þrjú dauðafæri í lok leiksins og varð því Blackburn meistari það tímabilið en liðinu var stýrt af Kenny Dalglish.13. maí 2007Carlos Tevez tryggði West Ham sigur gegn United í fyrra.Nordic Photos / Getty ImagesUnited var þegar orðið meistari þegar liðið tók á móti West Ham á Old Trafford. Carlos Tevez skoraði sigurmark West Ham í leiknum sem bjargaði sér frá falli í kjölfarið. Mark hans var metið á 40 milljónir punda fyrir West Ham en hann gekk í lok tímabilsins til liðs við Manchester United.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira