Ísraelar búa sig undir umfangsmikinn stríðsrekstur 30. desember 2008 12:00
Ísraelar hafa undirbúið umfangsmikið stríð gegn Hamas-samtökunum á Gaza og loftárásir síðustu daga aðeins fyrsta skrefið. Ísraelskir miðlar hafa þetta eftir forsætisráðherra Ísraels og segja hann gera ráð fyrir hernaði næstu vikurnar. Ísrelsher varpaði sprengjum á Gaza í morgun, fjórða daginn í röð. Tólf Palestínumenn féllu í þeim árásum, þar á meðal tvær systur, tíu og tólf ára. Palestínumenn segja þrjú hundruð fjörutíu og átta liggja í valnum fleiri en átta hundruð íbúa særða. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna segja að meðal fallinna séu sextíu og tveir almennir borgarar. Fjórir Ísraelar, þar af einn hermaður, hafa fallið í flugskeytaárásum Palestínumanna. Ísraelskir fjölmiðlar vitnuðu í morgun í samtal Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, og Shimons Peres Ísraelsforseta. Haft er eftir Olmert að loftárásir síðustu daga séu aðeins fyrsta skrefið af mörgum í stríði gegn Hamas-samtökunum. Barist verði næstu vikurnar. Herlið hefur verið flutt að landamærum Gaza og Ísraels og búist við innráns á næstu dögum. Varalið hefur verið kallað út. Þingkosningar verða í Ísrael eftir sex vikur. Fastlega er búist við að Líkúdflokkur hægrisinnaðra hauka í ísraelskum stjórnmálum fari þá með sigur af hólmi og ríkisstjórn miðflokka undir forystu Kaídamflokks Olmerts og nýs leiðtoga utanríkisráðherrans Tzipi Livni hrökklist frá völdum. Aðgerðum Ísrela hefur verið mótmælt víða um heim og það verður einnig á Lækjartorgi í Reykjavík klukkan fjögur síðdegis. Þá hefur Féalgið Ísland Palestína boðað til útifundar. Þar verður þess krafist að árásir Ísraelshers á Gaza verði stöðvaðar og stjórnmálasambandi við Ísrael verði slitið. Ræðumenn á fundinum verða María S. Gunnarsdóttir, formaður Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna, Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri-grænna, og Séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju. Fundarstjóri verður Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja Innlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Erlent „Þjóðin á rétt á að vita“ Innlent Fleiri fréttir „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Sjá meira