Erlent

Karadzic nýtur ekki friðhelgi

Er sakaður um þjóðarmorð í Serbíu milli 1992 og 1995.
Er sakaður um þjóðarmorð í Serbíu milli 1992 og 1995.

Dómarar á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa úrskurðað að samningur um friðhelgi sem Radovan Karadzic, fyrrum leiðtogi Bosníu-Serba, segist hafa gert við friðarerindreka SÞ árið 1996 sé ógilt. Hin meinta friðhelgi muni því ekki koma í veg fyrir að réttað verði yfir Karadzic vegna ákæru um þjóðarmorð.

Karadzic heldur því fram að hann hafi gert samninginn við bandaríska friðarerindrekann Richard Holbrooke í skiptum fyrir að láta af völdum árið 1996. Holbrooke neitar því að slíkur samningur hafi verið gerður. Dómarar SÞ taka einnig fram að þó svo að slíkur samningur hefði verið gerður væri hann ekki lagalega bindandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×