Erlent

Vatn flæðir nú úr stöðuvatni í Sisjúan héraði í Kína

Vatn byrjaði í morgun að flæða úr stöðuvatni í Sisjúan héraði í Kína um skurð sem kínverski herinn hefur verið að grafa undanfarna daga.

Þar með minnkar þrýstingur á stíflu, sem varð til í skriðuföllum í jarðskjálftanum mikla þann 12. maí. Vonast er til að stöðuvatnið minnki nógu mikið til þess að ekki verði lengur hætta á að vatnið grafi sig í gegnum stífluna.

Annað stöðuvatn sem varð til í jarðskjálftanum brast hins vegar fram í gær. Í vatnsflaumnum mátti meðal annars sjá lík fólks sem lét lífið í skjálftanum og hafði legið í húsarústum sem vatnið fór um. Menn sem voru að grafa skurð úr vatninu þegar stíflan brast áttu fótum sínum fjör að launa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×