Írar fella Lissabon-sáttmálann - Baroso hvetur önnur ríki til að staðfesta 13. júní 2008 16:01
Nú er það staðfest að Írar hafa fellt Lissabon-sáttmálann í þjóðaratkvæðagreiðslu. Búið er að telja öllum kjördæmum og er niðurstaðan á þann veg að 53,4 prósent þeirra sem tóku þátt höfnuðu sáttmálanum en 46,6 prósent sögðu já. Jose Manuel Baroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hvetur önnur ríki sambandsins til þess að halda ótrauð áfram við að staðfesta Lissabon sáttmálann, þrátt fyrir að Írar hafi hafnað honum í þjóðaratkvæðagreiðslu. 18 af 27 ríkjum sambandsins hafa nú þegar staðfest sáttmálann sem sumir vilja kalla stjórnarskrá sambandsins. Írland var eina landið sem fór þá leið að skera úr um málið með þjóðaratkvæðagreiðslu. Fyrstu kannanir bentu til að sáttmálinn yrði samþykktur þar í landi en á síðustu vikum fór að síga á ógæfuhliðina hjá stuðningsmönnum málsins. Aðeins 42 prósent kjósenda á Írlandi neyttu atkvæðisréttar síns í kosningunum um sáttmálann sem gerir ráð fyrir umtalsverðum breytingum á stjórnskipan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir eggjunarorð Baroso virðist Lissabon-sáttmálinn þó vera úr sögunni því öll aðildarlönd sambandsins þurfa að staðfesta hann. Sáttmálanum er ætlað að koma í stað stjórnarskrár Evrópusambandsins sem Hollendingar og Frakkar höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir um þremur árum.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Sjá meira