Erlent

Segja Íra hafa hafnað Lissabon-sáttmálanum

Breska blaðið Times fullyrðir að Írar hafi hafnað Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins sem kosið var um í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær.

Á vefsíðu blaðsins segir að 52 prósent hafi hafnað samningnum en 48 prósent samþykkt hann en að úrslitin verði ekki kunngjörð fyrr en um miðjan dag.

Aðeins 42 prósent kjósenda á Írlandi neyttu atkvæðisréttar síns í kosningunum um sáttmálann sem gerir ráð fyrir umtalsverðum breytingum á stjórnskipan Evrópusambandsins.

Ef fullyrðingar Times reynast réttar virðist Lissabon-sáttmálinn úr sögunni því öll aðildarlönd sambandsins þurfa að staðfesta hann. Sáttmálanum er ætlað að koma í stað stjórnarskrár Evrópusambandsins sem Hollendingar og Frakkar höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir um þremur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×