Mugabe tilbúinn í borgarastyrjöld 13. júní 2008 16:20 Robert Mugabe, hinn 84. ára gamli leiðtogi Zimbabve.
Robert Mugabe, núverandi forseti Zimbabwe, segir að tapi hann forsetakosningunum í landinu í lok mánaðarins verði fyrrverandi hermenn tilbúnir að sverfa til stáls. Á fundi sem Mugabe hélt fyrir flokk sinn, ZANU, í dag lét hann þau orð falla að honum hafi verið tjáð af fyrrverandi hermönnum sínum að þeir muni beita skæruhernaði og öðrum ráðum til að steypa Morgan Tsvangirai, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, af stóli, sigri hann Mugabe í forsetakosningunum. Mugabe segir að Tsvangirai sé ekkert annað en handbendill fyrrverandi nýlenduherranna frá Bretlandi. Kjósi Zimbabve-búar Tsvangirai er ekki verið að gera annað en að koma landinu aftur í hendur hvítra manna að mati Mugabe. Mugabe ásamt stjórnarflokki sínum hefur verið við völd í Zimbabwe allt frá því að landið hlaut sjálfstæði árið 1980. Flokkur hans tapaði í fyrsta skiptið í kosningum í landinu í mars síðastliðnum gegn aðalstjórnarandstöðuflokknum, MDC sem er undir stjórn Tsvangirai. Tsvangirai tókst hins vegar ekki að ná meirihluta atkvæða í fyrri umferð forsetakosninganna og því fer önnur umferð fram 29. júní. Aðdragandi kosninganna hefur verið vægast sagt vafasamur og þykja menn Mugabe beita einkar óheiðarlegum og ósvífnum aðferðum. Aðilar frá Vesturlöndum hafa gagnrýnt ástandið gríðarlega en sjálfur segir Tsvangirai að 66 af hans mönnum hafi verið líflátnir á stuttum tíma.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Sjá meira