Afonso Alves er leikmaður 38. umferðar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. maí 2008 13:11 Afonso Alves fagnar einu marka sinna um helgina. Nordic Photos / Getty Images
Brasilíumaðurinn Afonso Alves er leikmaður lokaumferðar ensku úrvalsdeildarinnar en hann skoraði þrjú mörk í 8-1 stórsigri Middlesbrough á Manchester City. Smelltu hér til að sjá myndband af Afonso Alves, leikmanni 38. umferðar. Alves kom frá hollenska úrvalsdeildarfélaginu SC Heerenveen í janúar síðastliðnum en hann er nú orðinn 27 ára gamall. Hann hóf feril sinn með Atletico Mineiro í heimalandi sínu en árið 2002 fór hann til Svíþjóðar þar sem hann var í fjögur ár og lék bæði með Örgryte og Malmö. Þess má geta að árið 2005, er Alves lék með Malmö, var hann næstmarkahæstur í sænsku úrvalsdeildinni, tveimur færri en íslenski landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Hann var hins vegar markahæsti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar í fyrra er hann skoraði 34 mörk sem er félagsmet hjá Heerenveen. Alves er þó líklegar frægari fyrir mörkin sjö sem hann skoraði í einum og sama leiknum fyrir Heerenveen í október síðastliðnum. Það var mikið rætt og ritað um félagaskipti Alves og sér reyndar enn ekki fyrir endann á því máli. Alves var sagður hafa skrifað undir samning við AZ Alkmaar áður en félagaskiptaglugginn opnaði í síðasta mánuði en hann var svo seldur til Middlesbrough á lokadegi félagaskiptagluggans. Forráðamenn AZ hafa sagt að þeir hyggjast leita réttar síns fyrir dómstóli. Nafn: Afonso Alves Martins Júnior. Fæddur: 30. janúar 1981 í Brasilíu. Númer: 12 Félög: Atletico Mineiro, Örgryte, Malmö, Heerenveen og Middlesbrough.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira