Uppsögn Jóhanns kemur Birni á óvart 24. september 2008 21:00 Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra.
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að hann hafi fært fyrir því skýr efnisleg rök þegar þegar hann ákvað að auglýsa embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum til umsóknar. ,,Að lögreglustjóri bregðist við á þann veg, sem fyrir liggur, kom mér á óvart," segir Björn í tölvupósti vegna fyrirspurnar Vísis til ráðherra. Jóhann R. Bendiktsson, fráfarandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, tilkynnti fyrr í dag að hann hyggst láta af embætti frá og með 1. október. Þá hafa þrír lykilstarfsmenn hjá embættinu einnig tilkynnt um afsögn sína. Ástæðan fyrir uppsögn Jóhanns er ákvörðun dómsmálaráðuneytisins að auglýsa stöðu lögreglustjóra á Suðurnesjum til umsóknar án þess að Jóhann hafi sagt upp starfinu. Jóhann hefur gengt embætti lögreglustjóra síðastliðinn fimm ár. Jóhann segir að það hafi orðið trúnaðarbrestur á milli embættis lögreglustjóra á Suðurnesjum og dómsmálaráðuneytisins. Aðspurður hvort hann taki undir með Jóhanni segir Björn: ,,Þegar ég dvaldist erlendis í embættiserindum sá Jóhann R. Benediktsson ástæðu til að ganga á fund staðgengils míns hér heima og gefa til kynna, að hann óskaði eftir starfslokasamningi. Ég lét þetta ekki á mig fá og ræddi við Jóhann strax á Keflavíkurflugvelli við heimkomu mína. Vafalaust hefðu einhverjir túlkað þetta sem trúnaðarbrest en ég gerði það ekki." Spurður hvort að ákvörðun Jóhanns og þremenninganna muni hafa óæskileg áhrif á löggæslumál á Suðurnesjum segir Björn að lagt verði kapp á að finna nýjan lögreglustjóra sem síðan ráði sitt nánasta samstarfsfólk. Björn treysti því að þeir sem sinni landamæravörslu, tollgæslu, öryggisgæslu og gæta laga og réttar á Suðurnesjum til að sinna störfum sínum af sömu alúð og kostgæfni og áður. Vísir spurði Björn einnig hvort hann hafi stuðning ríkisstjórnarinnar fyrir fyrirhuguðum breytingum á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Svar Björns var eftirfarandi: ,,Ríkisstjórnin samþykkti sl. vor frv. frá fjármálaráðherra um breytinga á skipan tollamála, ég veit ekki annað en ríkisstjórn er enn sama sinnis."
Tengdar fréttir Fjórir lykilstarfsmenn lögreglunnar á Suðurnesjum hætta Jóhann R. Benediktsson, lögreglu- og tollstjórinn á Suðurnesjum, hefur í dag óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að fá að hætta störfum þann 1. október næstkomandi. Jóhann tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á starfsmannafundi í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju í dag. 24. september 2008 16:53 Engin ragnarök við brotthvarf Jóhanns „Það er vissulega áhyggjuefni ef það eru miklar breytingar i stjórnkerfi lögreglunnar og það gæti haft áhrif á gæði þjónustunnar," segir Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Jóhanni R. Benediktssyni lögreglustjóra á Suðurnesjum hefur verið tilkynnt að embætti hans verði senn auglýst laust til umsóknar, án þess að hann hafi óskað eftir því. 24. september 2008 13:32 Talið líklegt að Sigríður Björk sæki um á Suðurnesjum Sigríður Björk Guðjónsdóttir aðstoðarríkislögreglustjóri vill hvorki játa því né neita að hún muni sækja um embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum en starfið var auglýst laust til umsóknar. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um slíkt," 24. september 2008 10:54 Jóhann: Óeðlileg samskipti við Björn Jóhann R. Benediktsson, fráfarandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, segir að frá því að tilkynnt var í mars um að skipta eigi lögregluembættinu upp hafi samskipti sín við Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, verið óeðlileg. Jóhann var gestur í Kastljósi fyrr í kvöld. 24. september 2008 19:50 Löggæslumál á Suðurnesjum munu gjalda fyrir klaufaskap Björns Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, segir uppsögn Jóhanns Benediktssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, og þriggja annarra lykilstarfsmanna hjá embættinu mjög slæmar og segist mjög ósáttur við hvernig dómsmálaráðherra hafi farið fram í málinu. 24. september 2008 17:35 Lögreglumenn á Suðurnesjum ósáttir með duttlunga Björns Félagsmenn í Lögreglufélagi Suðurnesja eru ósáttir við ákvörðun Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, um að auglýsa stöðu sitjandi lögreglustjóra á Suðurnesja lausa til umsóknar án nokkurs tilefnis. Þetta kemur fram í ályktun sam samþykkt var á félagsfundi Lögreglufélagsins fyrr í dag. 24. september 2008 19:04 Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira
Fjórir lykilstarfsmenn lögreglunnar á Suðurnesjum hætta Jóhann R. Benediktsson, lögreglu- og tollstjórinn á Suðurnesjum, hefur í dag óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að fá að hætta störfum þann 1. október næstkomandi. Jóhann tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á starfsmannafundi í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju í dag. 24. september 2008 16:53
Engin ragnarök við brotthvarf Jóhanns „Það er vissulega áhyggjuefni ef það eru miklar breytingar i stjórnkerfi lögreglunnar og það gæti haft áhrif á gæði þjónustunnar," segir Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Jóhanni R. Benediktssyni lögreglustjóra á Suðurnesjum hefur verið tilkynnt að embætti hans verði senn auglýst laust til umsóknar, án þess að hann hafi óskað eftir því. 24. september 2008 13:32
Talið líklegt að Sigríður Björk sæki um á Suðurnesjum Sigríður Björk Guðjónsdóttir aðstoðarríkislögreglustjóri vill hvorki játa því né neita að hún muni sækja um embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum en starfið var auglýst laust til umsóknar. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um slíkt," 24. september 2008 10:54
Jóhann: Óeðlileg samskipti við Björn Jóhann R. Benediktsson, fráfarandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, segir að frá því að tilkynnt var í mars um að skipta eigi lögregluembættinu upp hafi samskipti sín við Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, verið óeðlileg. Jóhann var gestur í Kastljósi fyrr í kvöld. 24. september 2008 19:50
Löggæslumál á Suðurnesjum munu gjalda fyrir klaufaskap Björns Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, segir uppsögn Jóhanns Benediktssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, og þriggja annarra lykilstarfsmanna hjá embættinu mjög slæmar og segist mjög ósáttur við hvernig dómsmálaráðherra hafi farið fram í málinu. 24. september 2008 17:35
Lögreglumenn á Suðurnesjum ósáttir með duttlunga Björns Félagsmenn í Lögreglufélagi Suðurnesja eru ósáttir við ákvörðun Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, um að auglýsa stöðu sitjandi lögreglustjóra á Suðurnesja lausa til umsóknar án nokkurs tilefnis. Þetta kemur fram í ályktun sam samþykkt var á félagsfundi Lögreglufélagsins fyrr í dag. 24. september 2008 19:04