Erlent

Auðvelt að kaupa fölsk diplómatísk númer á bíla í Pakistan

Blaðamaður Nyhedsavisen hefur sýnt fram á það að ekki þurfi að taka nema sjö mínútur og sem svarar þrjú hundruð íslenskum krónum að kaupa fölsk diplómatísk skráningarnúmer á bíla í Islamabad, höfuðborg Pakistans.

Bíll með slíkum númerum var notaður í sjálfsvígsárásina á danska sendiráðið í borginni. Yfirvöld hafa bent á hin fölsku númer sem dæmi þess að árásin hafi verið vel undirbúin.

Á þekktum markaði í Islamabad er hins vegar afar auðvelt að fá falskar númeraplötur - hvort sem um er að ræða venjuleg númer eða rauðar diplómataplötur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×