Væntanleg heimsókn Obama til Berlínar veldur ólgu Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 11. júlí 2008 16:59
Stjórnvöld í Þýskalandi neita fyrir að Bandaríkjastjórn hafi sett pressu á kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, að koma í veg fyrir að Barack Obama haldi ræðu í Berlín í lok júlí. Stærstu fréttamiðlar Þýskalands á borð við Bild og Frankfurter Allgemeine Zeitung, sögðu frá því að ráðamenn Bandaríkjanna hefðu á G8-ráðstefnunni í Japan lýst andstöðu sinni yfir ræðuhöldum Obama í Þýskalandi og þrýst á kanslarann að koma í veg fyrir heimsóknina. Talsmaður Merkel hefur hins vegar þvertekið fyrir allar slíkar vangaveltur og sagði hann við fjölmiðla í dag að Obama væri meira en velkominn. Ræðuhöld Obama í Berlín munu fara fram í lok mánaðarins við Brandenborgarhliðið, helsta sameiningartákn allra Berlínarbúa, og eru hluti af stuttri Evrópuför bandaríska forsetaframbjóðandans. Ólga í stjórnarsamstarfinu? Annar aðstoðarmaður Merkel hafði reyndar á miðvikudag sagt að það færi fyrir brjóstið á henni að Brandenborgarhliðið yrði notað í kosningabaráttu Obama. Í kjölfarið lýsti utanríkisráðherra landsins, Frank-Walter Steinmeier, því yfir að það væri heiður að fá Obama í heimsókn til landsins. Þýskir fjölmiðlar túlkuðu þessi viðbrögð sem spennu innan þýsku ríkisstjórnarinnar en Merkel og Steinmeier koma úr sitthvorum stjórnarflokknum. Steinmeier er sósíaldemókrati og Merkel kristilegur demókrati en búast má við harðri baráttu þeirra á milli á komandi misserum því blásið verður til kosninga í Þýskalandi á næsta ári. Deilurnar hafa hins vegar verið blásnar af í bili því á sameiginlegum blaðamannafundi í dag sagði talsmaður Merkel, Ulrich Wilhelm, að „Steinmeier og Merkel hlökkuðu bæði til væntanlegrar heimsóknar Obama".
Tengdar fréttir Obama heimsækir Evrópu í næstu viku Barak Obama ætlar að fara í fyrstu Evrópuferð sína í næstu viku, sem forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum. Hann áætlar að heimsækja sjö ríki á jafnmörgum dögum. 9. júlí 2008 08:09 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Innlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira
Obama heimsækir Evrópu í næstu viku Barak Obama ætlar að fara í fyrstu Evrópuferð sína í næstu viku, sem forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum. Hann áætlar að heimsækja sjö ríki á jafnmörgum dögum. 9. júlí 2008 08:09