Erlent

Kremlarherrar líða engin mótmæli

Óli Tynes skrifar
Lögreglumenn voru ekkert að tvínóna við hlutina þegar mótmælafundurinn var leystur upp.
Lögreglumenn voru ekkert að tvínóna við hlutina þegar mótmælafundurinn var leystur upp. MYND/AP

Skáksnillingurinn Gary Kasparov gerði enn eina tilraun til þess að mótmæla stjórnvöldum í Rússlandi, í dag.

En það fór eins og fyrri daginn. Kremlarherrar í dag eru ekkert hrifnari af andstöðu en forverar þeirra.

Rússneskum óeirðalögreglumönnum var sigað á hópinn til þess að leysa upp mótmælafundinn. Þeir handtóku að minnsta kosti 25 manns sem þeir tróðu inn í trukka og höfðu á brott með sér.

Þótt þeir þykist reka lýðræðisríki leyfa þeir Vladimir Putin forsætisráðherra og Dmitry Medvedev forseti engin andmæli. Lögreglumenn hafa hvað eftir annað leyst upp fundi sem samtök Kasparovs hafa boðað til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×