Brown harðlega gagnrýndur fyrir meðferðina á Íslendingum 14. desember 2008 12:16
Breska blaðið Sunday Times birtir í dag langa grein þar sem Gordon Brown er harðlega gagnrýndur fyrir meðferð sína á Íslandi. Blaðamaðurinn Adrian Gill heimsótti Ísland til þess að kynna sér stöðu mála og virðist hafa hrifist af landi og þjóð. Hann segir að Íslendingar séu frjálslyndasta, sanngjarnasta, vinnusamasta, best menntaða og skemmtilegasta þjóð í Evrópu. Landið sé stórt en fólkið fátt, aðeins um 300 þúsund manns. Og þessa þjóð hafi Gordon Brown valið til þess að sparka í til þess að auka eigin vinsældir heimafyrir. Hann hafi sett hryðjuverkalöggjöf á þjóð sem hafi ekki einusinni eigin her. Þar sem lögreglan keyri menn heim til sín ef þeir verði of drukknir. Með því að beita hryðjuverkalöggjöfinni hafi Brown sett bandalagsþjóð á efnahagslega gjörgæslu fyrir nokkrar fyrirsagnir og nokkra punkta í skoðanakönnunum. Hann hafi með gjörðum sínum endanlega kollvarpað íslenska bankakerfinu og efnahag landsins. Gill segir að Brown hefði aldrei þorað að beita aðra þjóð þessum þjösnaskap. Hann hefði aldrei beitt þýska eða franska banka svipuðum aðgerðum, jafnvel ekki banka í Lichtenstein. Adrian Gill virðist hafa komið víða við og talað við marga á ferð sinni um Ísland. Hann kemst við þegar hann sér hvað þarf lítið til þess að gleðja þjóðina. Segir frá því hvernig íslendingar hafi safnast saman á túnblettinum fyrir framan Alþingishúsið til að gleðjast yfir því þegar handboltalið landsins vann silfur á Ólympíuleikunum. Og Gill kann að setja hlutina í samhengi hann segir góðlátlega frá því að Alþingishús Íslendinga sé minna en gestahús Eltons Johns.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Sjá meira