Erlent

Búist við að ríkisstjóri segi af sér vegna þingsætissölu

Óli Tynes skrifar
Rod Blagovich ríkisstjóri í Illinois.
Rod Blagovich ríkisstjóri í Illinois. MYND/AP

Saksóknari Illinos ríkis segir að hún hafi heyrt að Rod Blagojevitch ríkisstjóri kunni að segja af sér embætti á morgun.

Ríkisstjórinn var handtekinn í síðustu viku, sakaður um að hafa reynt að selja þingsætið sem Barack Obama skildi eftir sig þegar hann var kjörinn forseti.

Þetta komst upp þegar sími ríkisstjórans var hleraður vegna rannsóknar á öðrum spillingarmálum sem Blagojevich er grunaður um.

Ríkisstjórinn var látinn laus gegn tryggingu og hefur nú ráðið sér frægan glæpamála-lögmann til þess að gæta hagsmuna sinna.

Búist er við að ef Blagojevits segi ekki af sér, verði höfðað mál til þess að fá hann rekinn úr embætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×