Vöruskortur á Spáni vegna mótmæla vörubílstjóra 10. júní 2008 12:04
Verkfall spænskra vöruflutningabílstjóra vegna hækkandi eldsneytisverðs hélt áfram í morgun, annan daginn í röð. Vöruskorts er er farið að gæta vegna aðgerðanna. Um níutíu þúsund vöruflutningabílstjórar hafa lagt niður vinnu. Flutningar á nauðsynjum hafa lamast. Bensínstöðvum berast ekki nýjar birgðir af eldsneyti og því hafa Spánverjar víða hamstrað eldsneyti. Vöruflutningabílstjórar krefja spænsk yfirvöld um aðgerðir vegna hækkandi eldsneytisverðs sem hefur knúið marga starfsfélaga þeirra í gjaldþrot. Verð á dísilolíu hefur hækkað um tuttugu prósent á Spáni það sem af er þessu ári. Bílstjórarnir vilja að lágmarksverð fyrir þjónustu þeirra verði fest í lög. Yfirvöld hafa hins vegar boðið neyðarlán og eingreiðslur til eldri bílstjóra svo þeir fari fyrr á eftirlaun. Vöruflutningabílstjórar hafa mótmælt hækkandi eldsneytisverði á Englandi í Frakklandi og Portúgal síðustu vikur. Þess er beðið með eftirvæntingu að sjá hvernig leiðtogar Evrópusambandsríkja taki á málinu á fundi síðar í mánuðinum. Fulltrúar ESB hafa þó bent á að evrópulög banni fjárstuðning eða niðurgreiðslur til lengri tíma. Virðisaukaskattur á eldsneyti samkvæmt þeim geti ekki verið lægri en fimmtán prósent. Hækkandi eldsneytisverði er ekki bara mótmælt í Evrópu. Í morgun gengu mörg hundruð vöruflutningabílstjórar um götur Hong Kong og kröfðu yfirvöld um aðgerðir. Í Katmandu í Nepal mótmæltu námsmenn hækkandi bensínverði og kröfðust þess að ríkið hætti einokun á innflutningi og sölu á eldsneyti.
Mest lesið Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Hækka þurfi veiðigjald í skrefum Innlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Erlent Fleiri fréttir Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Sjá meira