1800 milljarðar gufa upp í Írak 10. júní 2008 16:12 Halliburton, félag sem Dick Cheney vann hjá áður en hann varð varaforseti, fékk feitan samning í Írak. MYND/AP
Um 23 milljarðar dollara, jafnvirði um 1800 milljarða íslenskra króna, hafa gufað upp í Írak frá því að ráðist var inn í landið. Þetta fullyrða fréttamenn þáttarins Panorama á BBC sem rannsakað hafa hvert fjármunir sem verja átti í uppbyggingarstarf fóru. Fram kemur á fréttavef BBC að fjármunirnir hafi ýmist týnst, verið stolið eða illa gert grein fyrir þeim. Fréttamenn Panorama hafa einnig rannsakað hvaða verktakar hafi hagnast á uppbyggingunni en þagnarákvæði í Bandaríkjunum komi í veg fyrir að hægt sé að ræða ásakanir um spillingu í þessum efnum. Segir BBC að á meðan George Bush sé Bandaríkjaforseti sé ólíklegt að þagnarákvæðin verði afnumin. Rætt er við Henry Waxman, sem fer fyrir nefnd í fulltrúadeild Bandaríkjaþings um eftirlit og umbætur stjórnvalda, og hann segir hneyksli hversu miklir peningar hafi farið spillis og verið sviknir út af verktökum. „Þetta gæti orðið mesta hermang sögunnar," segir hann. Fram hefur komið að Halliburton, félag sem Dick Cheney varaforseti var í forsvari fyrir, hafi fengið hátt í 500 milljarða króna samning í Írak og hafi setið eitt að kjötkötlunum. Þá hefur BBC rakið fjármuni til manns sem bjó í Bretlandi en var skipaður varnarmálaráðherra Íraks árið 2004. Hann og félagar hans eru sakaðir um að hafa svikið um 70 milljarða út úr ráðuneytinu með því að kaupa gamlan pólskan herbúnað og dubba hann upp sem hágæðavopn. Maðurinn, Hazem Shalaan, var dæmdur í tveggja ára fangelsi en flýði land og er nú eftirlýstur af Interpol.
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Erlent Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Erlent Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Erlent Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Innlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Innlent Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Innlent Fleiri fréttir Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Mannfallið að nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Sjá meira