Nýnasistar á metamfetamíni hugðust drepa Obama Atli Steinn Guðmundsson skrifar 26. ágúst 2008 08:38
Lögregla í Denver í Colorado hefur handtekið fjórmenninga, þrjá menn og konu, sem grunaðir eru um að hafa lagt á ráðin um að skjóta forsetaframbjóðandann Barack Obama til bana þegar hann ávarpar 80.000 manns á íþróttaleikvanginum þar á fimmtudag. Málið hófst með handtöku 28 ára gamals manns sem ók glæfralega um götur Aurora, sem er í grennd við Denver, á sunnudagsmorgun. Sá handtekni var á leigðum pallbíl og leiddi leit í bílnum í ljós tvo kraftmikla riffla með mögnunarsigti, klæðnað í felulitum, handtalstöðvar, hárkollur, skotheld vesti, skilríki með nöfnum annars fólks og 44 grömm af metamfetamíni. Í kjölfarið var annar maður handtekinn eftir að hafa stokkið út um glugga á sjöttu hæð hótels í borginni. Sá öklabrotnaði við fallið og var skreyttur hakakrossi auk ýmissa muna sem tengdu hann við öfgasamtök hvítra manna. Að lokum handtók lögregla par sem tengdist hinum tveimur. Fólkinu er haldið á grundvelli vopna- og eiturlyfjahandhafnar en við yfirheyrslur játuðu einhver þeirra að þau hefðu verið á leið til Denver gagngert til að ráða Barack Obama af dögum og hefði verið ætlun þeirra að skjóta hann „með kraftmiklum riffli af 750 metra færi frá stað í mikilli hæð."Öryggisráðstafanir vegna þings Demókrataflokksins hafa verið hertar töluvert vegna þessa atviks og hefur alríkissaksóknari í Denver boðað blaðamannafund síðdegis í dag. Hann telur þó ólíklegt að fjórmenningarnir hafi verið raunveruleg ógn við Obama. Embættismaður sem þekkir til rannsóknar málsins segir vafasamt að hin handteknu hafi haft getu til að framkvæma meint ætlunarverk sitt. CBS4 greindi frá þessu.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi Sjá meira