Einar mestu óeirðir til þessa 15. desember 2008 03:00 Hópar manna fóru um miðborg Aþenu í fyrrinótt með báli og brandi.
Þrjátíu manns voru handteknir í fyrrinótt í einum mestu óeirðum sem brotist hafa út í Aþenu frá því að hinn 15 ára Alex Grygoropoulos var skotinn til bana af lögreglumanni á laugardaginn í síðustu viku. Þetta kom fram í gríska dagblaðinu Ta Nea í gær. Í fyrradag voru haldnar minningarathafnir um piltinn víða um landið. Þær fjölmennustu voru á Stjórnarskrártorginu í miðborg Aþenu og svo í hverfinu Exarheía þar sem hann var skotinn. Um nóttina fóru svo hópar manna um miðborgina með eldsprengjur og kveiktu í bílum, verslunum, bönkum og fleiru sem fyrir varð. Í dag tekur gildi rýmri opnunartími verslana í Grikklandi í aðdraganda jóla en verslunarmenn eru afar svartsýnir og telja að viðskiptin í ár geti orðið allt að 70 prósentum rýrari en í fyrra. Þar við bætist að verslunarhverfi borgarinnar eru illa farin eftir óeirðirnar sem staðið hafa í rúma viku og bjóða margar verslanir upp á allt að 50 prósenta afslátt til þess að reyna að ýta við kaupendum. Kostas Karamanlis forsætisráðherra hefur þó sagt að reynt verði að bæta tjón verslunareigenda eftir fremsta megni.
Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira