Erlent

Obama hrósaði Hillary í hástert

Barak Obama forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum hrósaði Hillary Clinton í hástert í gærkvöldi eftir að hún lýsti yfir stuðningi við hann í ræðu, sem markaði endann á framboði hennar sjálfrar.

Obama sagði að hún hefði hrifið milljónir Bandaríkjamanna með styrk sínum, hugrekki og staðfestu. Ekki er ljóst hvaða hlutverk Clinton tekur að sér í baráttunni fyrir sjálfar kosningarnar í nóvember.

Margir forystumenn demokrata þrýsta á Obama að bjóða henni að vera varaforsetaefni sitt, en alls óvíst er talið að hann þiggi þau ráð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×