Kínverskir ökuþrjótar brengla bílnúmerin Atli Steinn Guðmundsson skrifar 7. maí 2008 16:46 MYND/AP
Kínverskir ökuníðingar hafa nú komið höndum yfir tæknibúnað sem gerir þeim kleift að stunda brot sín án þess að upp komist, a.m.k. í flestum tilfellum. Um er að ræða tæki sem víxlar tölum á númeraplötum ökutækja á örfáum sekúndum. Umferðarlögreglumaður í Guangdong-borg í héraðinu Yangjiang lét hafa eftir sér að rúmlega helmingur þeirra ökutækja, sem myndir nást af á hraðaeftirlitsmyndavélar, hylji skráningarplöturnar eða brengli þær með öðrum hætti. Sagði hann nánast útilokað að hafa hendur í hári slíkra þrjóta. Ökumaður nokkur sagði það heyra sögunni til að hylja plöturnar, nú hefði tæknin tekið völdin. Maður sem hefur lifibrauð sitt af sölu talnaskiptatækisins sagði þetta þægilega lausn og ódýra en tækið mun kosta 800 juan sem jafngildir tæpum 8.000 krónum. Lögregluyfirvöld í Kína lögðu í apríl hald á þúsundir bifreiða og skráningarplatna sem höfðu verið falsaðar til að líkjast munum í eigu kínverska hersins. Er það gert til að draga úr líkum á afskiptum löggæslu en auk umferðarlagabrota hafa slík ökutæki verið notuð við hvers kyns smygl og flutning á ólöglegum varningi. Reuters greindi frá.
Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Leikkonan Hayden Panettiere er látin Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Sjá meira