Flugmaður hafði ekki þjálfun til að lenda í þoku 18. desember 2008 12:21 Flugvél að gerðinni Bombardier 400.
Farþegum í flugvél á leið frá Bretlandi til Frakklands brá í brún þegar flugstjórinn tilkynnti að mikil þoka væri á flugvellinum í París og hann hefði ekki nauðsynlega þjálfun til þess að lenda í þoku. Umrædd vél var tveggja hreyfla sjötíu sæta skrúfuþota af gerðinni Bombardier 400. Hún var í eigu breska flugfélagsins Flybe. Vélin var að fara frá Cardiff til Parísar. Henni hafði þegar seinkað um þrjár klukkustundir í Cardiff vegna veðurs. Þegar hún fór í loftið var ágætis veður á Charles de Gaulle flugvelli. Meðan hún var á leiðinni lagðist hinsvegar þykk þoka yfir flugvöllinn. Tuttugu mínútum fyrir lendingu tilkynnti flugstjórinn að hann hefði ekki tilskylda þjálfun til þess að lenda í þoku. Því yrði að snúa við. Talskona flugfélagsins sagði að flugstjórinn hefði tekið hárrétta ákvörðun, enda hefði hann þrjátíu ára starfsreynslu. Ástæðan fyrir því að flugstjóri með þrjátíu ára starfsreynslu mátti ekki lenda í þokunni var sú að hann hafði nýlega flust af Bombardier 300 vél yfir á Bombardier 400. Nógu mikill munur er á þessum vélum til þess að flugmenn þurfa að ganga í gegnum sérstaka þjálfun við skiptin. Mismunandi þjálfunarstig eru til lendingar í slæmu skyggni. Viðkomandi flugstjóri hafði þjálfunarstig númer fimm en þurfti þjálfunarstig númer tvö til þess að lenda í þokunni eins og hún var á Charles de Gaulle. Það var því snúið aftur til Cardiff og beðið eftir að þokunni létti í París. Talsmaður breska loftferðaeftirlitsins sagði í samtali við Sky fréttastofuna að þetta væri mjög óvenjulegt tilfelli, en líklega ekkert einsdæmi.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Fleiri fréttir Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Sjá meira