Newcastle enn á sigurbraut Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. apríl 2008 14:28 Michael Owen fagnar fyrra marki sínu með Geremi. Nordic Photos / Getty Images
Newcastle vann 2-0 sigur á grönnum sínum í Sunderland og lék þar með sinn sjötta leik í röð án taps. Þetta var einnig í fjórða skiptið af síðustu fimm sem Newcastle hélt hreinu. Michael Owen skoraði bæði mörk Newcastle í fyrri hálfleik en mörkin hefðu þó getað orðið fleiri. Nicky Butt og Abdoulaye Faye hristu af sér smávægileg meiðsli og voru í byrjunarliði Newcastle í dag sem var eins skipað og í fjórum af síðustu fimm leikjum liðsins. Danny Higginbotham og Paul McShane voru í byrjunarliði Sunderland í stað Jonny Evans og Phil Bardsley sem eiga við meiðsli að stríða. Þá voru Carlos Edwards og Liam Miller í byrjunarliðinu í stað þeirra Michael Chopra og Kieran Richardson. Leikurinn var varla byrjaður þegar að Michael Owen kom Newcastle yfir. Há sending inn á teig kom frá Geremi og Owen skallaði boltann glæsilega í markið. Skömmu síðar setti McShane knöttinn í eigið net en sem betur fer var búið að dæma aukaspyrnu og stóð því markið ekki. En Newcastle fékk vítaspyrnu þegar Higginbotham var dæmdur brotlegur fyrir að handleika knöttinn innan teigs. Owen skoraði örugglega úr spyrnunni. Newcastle var nær því að bæta við marki en Sunderland að minnka muninn en allt kom fyrir ekki. Owen reyndi að ná þrennunni en getur engu að síður vel við unað. Newcastle er nú með 42 stig, rétt eins og Tottenham sem er í ellefta sæti deildarinnar. Sunderland er hins vegar í fimmtánda sæti með 36 stig, fimm stigum frá fallsæti.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira