Erlent

Ofalin tígrisdýr sett í megrun

Einn tígranna slakar á eftir máltíð.
Einn tígranna slakar á eftir máltíð.
Tígrisdýrin í dýragarðinum í Kathmandu í Nepal eru komin í megrun. Bengaltígrarnir þrír hafa undanfarið fengið að gæða sér á buffalókjöti að vild og nú er svo komið að hinn yngsti er orðið 220 kíló að þyngd, og hefur þyngst um heil fjörtíu kíló undanfarna átta mánuði.

Bengaltígrarnir þurfa því líkt og margur maðurinn að halda í við sig á nýju ári. Ólíklegt er þó að megrunaraðferð tígrisdýranna verði vinsæl hjá þeim sem ætla að losna við jólaspikið. Aðhaldið felst í því að dýrin fá alls ekkert að borða á laugardögum, og þurfa að sætta sig við að drekka einungis vatn þá daga.

Reuters fréttastofan hefur eftir dýragarðsyfirvöldum að megrunin sé í samræmi við það sem tíðkist í dýragörðum annars staðar í heiminum. Það sé hollt fyrir dýrin að borða ekki einn dag í viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×