Erlent

Wade forseti segist bjartsýnn

Á kjörstað
Wade forseti greiðir atkvæði.
Á kjörstað Wade forseti greiðir atkvæði. MYND/AP

Abcoulaye Wade, forseti Senegals, segist afar bjartsýnn á að fá meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna, sem haldnar voru í gær, þannig að ekki þurfi að efna til seinni umferðar.

Wade sigraði með yfirburðum í kosningunum árið 2000 og steypti þá af stóli forseta Sósíalistaflokksins, sem hafði stjórnað landinu samfleytt í 40 ár. Hann boðaði þá miklar breytingar, en nú sætir hann gagnrýni fyrir að hafa ekki breytt miklu í reynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×