Erlent

Sarkozy hættir sem ráðherra

Nicolas Sarkozy
Nicolas Sarkozy AFP

Nicolas Sarkozy, forsetaframbjóðandi hægrimanna í Frakklandi hættir í dag sem innanríkisráðherra landsins eins og tilkynnt hafði verið. Nú líður að kosningum í landinu en fyrri umferðin fer fram þann 22. apríl. Sarkozy mun einbeita sér að kosningabaráttu þangað til.

Sarkozy hefur enn nokkuð góða forystu í skoðanakönnunum fyrir fyrri umferðina en Segolene Royal frambjóðandi sósíalista og miðjumaðurinn Francois Bayrou berjast um að komast með honum í aðra umferð. Francois Baroin sem hefur gengt embætti nýlenduráðherra tekur við af Sarkozy sem innanríkisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×