Erlent

Paisley og Adams að ná samkomulagi

Gerry Adams
Gerry Adams AFP

Ian Paisley og Gerry Adams leiðtogar Sambandsflokksins og Sinn Fein á Norður-Írlandi eru við það að komast að samkomulagi um myndun heimastjórnar í landinu. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildarmanni sínum. Ef af verður markar það þáttaskil í stjórnmálasögu Norður-Írlands.

Formenn þessara tveggja flokka hafa aldrei áður átt í friðsamlegum tvíhliða viðræðum um völd. Ekki tókst að mynda heimastjórn á Norður-Írlandi eftir kosningarnar fyrir fjórum árum og kom þingið sem þá var kjörið fyrst saman í fyrravor. Reglur segja til um að þátttöku fjögurra stærstu flokkanna þurfi til að mynda megi heimastjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×