Erlent

Sérsmíðaðir sjúkrabílar fyrir offeita Ástrala

Getty Images

Offituvandinn í Ástralíu hefur nú orðið til þess að stjórnvöld hafa neyðst til að endurnýja sjúkrabílaflota sinn. Nýju bílarnir eru hannaðir með það að augnamiði að sjúklingarnir séu stærri um sig en áður hefur verið. Rannsóknir benda til þess að um tveir af hverjum þremur Áströlum sem náð hafa 25 ára aldri séu of þungir og feitir.

Vandinn hefur líka aukist á meðal barna. Það virðist því full ástæða til að endurnýja sjúkrabílana. Nýlega tók til að mynda 16 klukkutíma fyrir sjúkraliða að flytja slasaðan 400 kílóa mann frá heimili hans á spítala eftir að hann fótbraut sig. Hjálparstarfsmenn þurftu meira að segja að rífa niður veggi heima hjá honum til að koma honum út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×