Erlent

Tígrar gerðu loftárás á herflugvöll

Læknar hlúa að særðum starfsmönnum flughersins
Læknar hlúa að særðum starfsmönnum flughersins AFP

Tamíl tígrar gerðu loftárás á herflugvöll nærri Colombo, höfuðborg Sri Lanka í gærkvöldi. Þetta er fyrsta loftárás sem tígrar gera nokkurn tíman. Þrír fórust og 16 særðust í árásinni.

Tvær litlar flugvélar voru notaðar í árásinni og vörpuðu þær tveimur sprengjum á stæði þar sem lagt er flugvélum og herþyrlum. Alþjóðaflugvellinum í Colombo sem stendur við herflugvöllinn var lokað tímabundið eftir árásina, en hann varð þó ekki fyrir skemmdum. Tígrar réðust áður á flugvöllinn árið 2001, þá fórust 18 og þeim tókst að þurrka út um helming flugflota stjórnarhersins.

Í yfirlýsingu frá tígrunum segir að stjórnarherinn megi búast við álíka árásum í nánni framtíð, að aðgerðin í gærkvöldi hafi verið til þess fallinn að stöðva þjóðarmorð stjórnarhersins á tamílum sem séu stunduð með loftárásum. Skelfing greip um sig á flugvellinum þegar sprengingarnar heyrðust og var flugum bæði til og frá honum aflýst og vegum í nágrenninu lokað. Engir óbreyttir borgarar særðust þó í árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×