Erlent

Heiftarlegar árásir Hamas-liða

Palestínskur drengur heldur á fána og þykist dáinn á mótmælafundi gegn átökum fylkinga Fatah- og Hamas-liða í Rafah á Gaza í gær.
Palestínskur drengur heldur á fána og þykist dáinn á mótmælafundi gegn átökum fylkinga Fatah- og Hamas-liða í Rafah á Gaza í gær. MYND/AP

Vopnaðir liðsmenn Hamas-samtaka Palestínumanna réðust í gær á stöðvar öryggissveita hollum Fatah-hreyfingunni, á fjórða degi stanslausra átaka milli fylkinganna tveggja eftir skammlíft vopnahlé. Beittu Hamas-liðarnir sprengjuvörpum og sprengiflaugum, auk skotvopna.

Fundur forystumanna í Fatah á Vesturbakkanum leystist upp í háværum deilum. Sumir kröfðust þess að Abbas tæki harðar á Hamas-liðum og öðrum sem hneigðust til þess að styðja miðlunartilraunir Sádi-Araba. Til stendur að Abbas hitti Khaled Mashall, útlægan æðsta leiðtoga Hamas, í Mekka á þriðjudag, í von um að geta stöðvað bræðravígin. Alls 28 Palestínumenn hafa látið lífið í átökunum frá því á fimmtudag, þar á meðal fjögur börn.

Shimon Peres, aðstoðarforsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að Ísraelsher yrði að gæta sín vel á því að halda sig utan við innbyrðis átök Palestínumanna, þar sem allar slíkar tilraunir gætu orðið til þess fallnar að sameina fylkingar þeirra gegn Ísraelum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×