Erlent

Ætla að kvarta yfir SÞ-áætlun

KFOR-hermaður í Kos-ovska Mitrovica. Á vegginn er krotað á albönsku: „Enga samninga – sjálfstæði!“
KFOR-hermaður í Kos-ovska Mitrovica. Á vegginn er krotað á albönsku: „Enga samninga – sjálfstæði!“ MYND/AP

Utanríkisráðherra Serbíu sagði í gær að Serbíustjórn myndi standa fast á þeirri kröfu að Kosovo yrði eftir sem áður hluti af Serbíu, hvað svo sem liði áætlun Sameinuðu þjóðanna um framtíðarstöðu héraðsins.

Ráðherrann, Vuk Draskovic, sagði í sjónvarpsviðtali að Serbíustjórn myndi leggja inn kvörtun hjá Sameinuðu þjóðunum til að krefjast breytinga á drögunum að áætluninni, sem sérlegur erindreki SÞ, Martti Ahtisaari, kynnti fyrir málsaðilum fyrir helgi. Boris Tadic forseti hefur kallað saman fund í dag með leiðtogum allra flokka til að leggja á ráðin um næstu skref.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×