Erlent

Skæða fuglaflensan að breiðast út á ný

Dauður fugl liggur nærri vegbrún í Suffolk, þar sem búið er að setja upp varúðarskilti vegna fuglaflensunnar sem greindist á kalkúnabúi þar.
Dauður fugl liggur nærri vegbrún í Suffolk, þar sem búið er að setja upp varúðarskilti vegna fuglaflensunnar sem greindist á kalkúnabúi þar. MYND/AP

Heimsbyggðin ætti að vera við því búin að fuglaflensa breiðist út á næstu mánuðum. Þetta segir sá fulltrúi Sameinuðu þjóðanna sem hefur það hlutverk að samhæfa alþjóðlegar aðgerðir gegn útbreiðslu skæðasta afbrigðis sjúkdómsins, sem getur smitast í menn og yfir 160 manns hafa dáið úr svo vitað sé, flestir í Suðaustur-Asíu.

Fulltrúinn, dr. David Nabarro, sagði hins vegar í gær að hann ætti ekki von á því að hið skæða H5N1-afbrigði fuglaflensunnar ætti eftir að breiðast út í Bretlandi frá kalkúnabúinu í Suffolk, þar sem sjúkdómurinn greindist fyrir helgina. Snör viðbrögð yfirvalda og eigenda kalkúnabúsins til að hindra að smit bærist út frá búinu gæfu að sögn Nabarros tilefni til að ætla að það gengi eftir. Það kæmi þó ekki í ljós fyrr en á næstu dögum, tjáði Nabarro AP-fréttastofunni frá Indónesíu, en þar í landi hefur fuglaflensan valdið langmestum usla frá því hún greindist fyrst árið 2003.

Nabarro sagði hins vegar að búast mætti við því að H5N1-fuglaflensutilfelli skytu upp kollinum á næstu mánuðum í löndum þar sem veikinnar hefði ekki orðið vart fram til þessa. Hún myndi fyrst og fremst breiðast út með farfuglum.

„Ég býst við að smits verði vart víða á næstu þremur til fjórum mánuðum,“ sagði Nabarro. Hann byggði þessa spá sína á því sem gerst hefði í fyrra. Þá barst smitið með farfuglum meðal annars til Skotlands og Skandinavíu, en ekki til Íslands. Verið er að byggja nýja rannsóknastofu á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum, þar sem á að verða hægt að greina sýni til að skera úr um hvort dauðir fuglar hafi verið sýktir af fuglaflensu.

Útbreiðsla hins skæða H5N1-afbrigðis fuglaflensu hefur valdið því að milljónum alifugla hefur verið eytt á síðustu árum, flestum í SA-Asíu, þar sem veiran greindist fyrst fyrir fjórum árum. Hundruð manna hafa smitast og minnst 160 dáið úr sýkinni á þessu tímabili, þar af um 60 manns í Indónesíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×