Erlent

Íslenska þjóðin sögð klofin

Bandaríska dagblaðið The New York Times birti um helgina langa grein um virkjanamál á Íslandi. Aðaláherslan er á Kárahnjúkavirkjun og álver Alcoa-Fjarðaáls á Reyðarfirði. „Það hefur verið í brennidepli heiftarlegustu deilur sem valdið hefur mestum klofningi meðal þjóðarinnar sem um getur í sögu Íslands,“ skrifar blaðið.

Í greininni er talað við andstæðinga og fylgjendur virkjunarinnar og stóriðjustefnu stjórnvalda og rök og viðhorf með og á móti rakin undir fyrirsögninni „Reykháfar í snævi þöktum óbyggðum kljúfa Ísland“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×