Erlent

Hundruð þúsunda á flótta

Á floti Heil hverfi í Djakarta eru á kafi.
Á floti Heil hverfi í Djakarta eru á kafi. MYND/AP

Að minnsta kosti 20 manns hafa látið lífið í flóðum í Djakarta, höfuðborg Indónesíu, og hátt á fjórða hundrað þúsund íbúar borgarinnar hafa þurft að flýja heimili sín, að sögn talsmanna almannavarnayfirvalda. Úrhellisrigning undanfarna daga hefur valdið því að ár hafa flætt yfir bakka sína og sett heilu borgarhverfin á kaf.

Hundruð íbúa húsa á flóðasvæðunum hafa ýmist ekki getað eða viljað yfirgefa hús sín, af ótta um eigur sínar, en björgunarsveitir voru í óða önn að koma fólkinu til hjálpar á bátum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×