Erlent

Árásirnar voru bara blekking

Hussein Osman, einn sex sakborninga í réttarhöldum út af misheppnuðum sprengjuárásum á London árið 2005, segir árásirnar hafi aldrei átt að valda neinu tjóni á fólki. Markmiðið hafi aðeins verið að vekja ótta og mótmæla þátttöku Bretlands í Íraksstríðinu.

Sprengjuefni, gerð úr blöndu af hveiti og sýru, fundust í neðanjarðarlestum og strætisvagni 21. júlí árið 2005, tveimur vikum eftir að sjálfmorðsárásarmenn drápu sjálfa sig og 52 farþega í London.Talið var að árásirnar hefðu mistekist, en Osman segir sprengjurnar ekki hafa verið raunverulegar sprengjur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×