Sex leikvangar opnir fyrir áhorfendum á Ítalíu um helgina 8. febrúar 2007 14:18 Samkvæmt ákvörðun ítalskra yfirvalda er heimavöllur Catania á Sikiley í hópi þeirra leikvanga þar sem áhorfendur fá ekki inngöngu fyrr en viðeigandi öryggisráðstafanir hafa verið gerðar. MYND/AP
Ítalska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að opna mætti sex knattspyrnuleikvanga fyrir áhorfendum um helgina en aðrir yrðu lokaðir þar til viðeigandi ráðstafanir hefðu verið gerðar sem tryggðu öryggi áhorfenda. Vellirnir sem um ræðir eru í Róm, Genúa, Siena, Cagliari, Tórínó og Palermo. Ákvörðunin var tekin eftir að lögreglumaður lést á föstudaginn var í tengslum við átök stuðningsmanna sikileysku liðanna Palermo og Catania fyrir utan heimavöll síðarnefnda liðsins. Leikir helgarinnar á öðrum völlum fara því fram fyrir luktum dyrum en með þessu vilja ítölsk yfirvöld skera upp herör gegn knattspyrnubullum sem hafa haft sig mikið í frammi á ítölskum völlum að undanförnu. Evrópusambandið hefur látið til sín taka í málinu því Franco Frattini, yfirmaður dóms- og öryggismála innan ESB, hefur óskað eftir fundi með Michel Platini, nýkjörnum formanni Knattspyrnusambands Evrópu, um ofbeldi og kynþáttahatur í tengslum við knattspyrnuleiki og leiðir til að vinna gegn því.
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Fleiri fréttir Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Sjá meira