Erlent

Kynþátturinn skiptir ekki máli við umferðareftirlit

Ný rannsókn í Bandaríkjunum hefur leitt í ljós að hvítir menn, blökkumenn og spænskumælandi menn eru jafn líklegir til þess að vera stöðvaðir af lögreglu við umferðareftirlit. Hins vegar er mun líklegra að lögregla leiti á og handtaki blökkumennina og þá spænskumælandi, en þá sem hvítir eru á hörund.

Í skýrslunni  voru tekin fyrir atvik sem áttu sér stað árið 2005 og var hún byggð á viðtölum við yfir sextíu og fjögur þúsund manns. Minnihlutahópar í Bandaríkjunum hafa lengi kvartað yfir því að aðgerðir lögreglu við umferðareftirlit byggist fremur á kynþætti en lögmætum grun um glæp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×