Erlent

Saklausir létust

Sex fórust í aðgerð afganska og bandaríska hersins í austurhluta Afganistan þegar uppræta átti starfsemi hryðjuverkamanna. Meðal sexmenninganna voru kona og unglingsstúlka.

Í kjölfarið brutust út mótmæli þar sem aðgerðum og veru Bandaríkjamanna í landinu var andæft.

Formælandi Bandaríkjahers segir grun hafa leikið á að fólkið væri að undirbúa sjálfsmorðssprengjuárásir. Sagði hann jafnframt sorglegt „að hryðjuverkamenn leggi líf annarra í hættu með því að fela sig innan um fjölskyldur þeirra“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×