Erlent

Írak - Varla von á árangri í bráð

Daglegt ofbeldi, útbreidd spilling og léleg viðhaldsvinna gerir það að verkum að uppbyggingarstarf á vegum Bandaríkjamanna í Írak ber varla mikinn árangur á næstunni. Þetta kemur fram í skýrslu, sem birt verður í dag, frá bandarískri stofnun sem hefur eftirlit með uppbyggingarstarfinu í Írak.

Samkvæmt skýrslunni hefur árásum heldur fækkað, en þær sem gerðar eru valda meiri eyðileggingu og raska öllu starfi meir en áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×