Erlent

Íranar boða komu sína

Manouchehr Mottaki
Manouchehr Mottaki

Íranar, með utanríkisráðherrann Manouchehr Mottaki í fararbroddi, ætla að sækja öryggisráðstefnu um Írak sem hefst í Sharm-el-Sheik í Egyptalandi í þessari viku.

Íran var eina þjóðin af þeim sem höfðu verið boðin sem hafði ekki tilkynnt um þátttöku sína í öryggisráðstefnunni. Áður höfðu allir aðrir nágrannar Íraks boðað komu sína, ásamt Egyptalandi, Barein og meðlimum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Írösk stjórnvöld höfðu sett mikinn þrýsting á Írana að taka þátt í ráðstefnunni og sögðu þátttöku nágranna sinna afar mikilvæga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×