Erlent

Stungin til bana með regnhlíf

Tvær konur voru handteknar á Ítalíu í gær, grunaðar um að hafa stungið unga konu til bana með regnhlíf.

Ítalskar sjónvarpsstöðvar sýndu í gær myndskeið úr eftirlitsmyndavélum sem náðust af konunum eftir verknaðinn, auk þess sem dagblöð birtu af þeim myndir. Vanessa Russo, 22 ára, lést af sárum sínum eftir hafa verið stungin í augað á leið til vinnu á fimmtudag. Miðað við vitnisburð sjónarvotta og myndir eftirlitsmyndavélanna eru konurnar sterklega grunaðar um verknaðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×