Erlent

Þrír milljarðar króna til höfuðs bin Laden

Ekkert hefur heyrst í Osama bin Laden í heilt ár.
Ekkert hefur heyrst í Osama bin Laden í heilt ár. Mynd/ AFP
Öldungadeild Bandaríkjaþings heitir þeim sem gómar eða drepur Osama bin Laden, höfuðpaur al-Qaida, þremur milljörðum íslenskra króna. Ákveðið var í dag að tvöfalda upphæðina. Sú ákvörðun kemur í kjölfarið á skýrslu sem bendir til þess að al-Qaida hafi byggt um verulegan styrk og ætli sér að koma útsendurum til Bandaríkjanna. Leyniþjónustumenn greindu jafnframt frá því í fulltrúadeildinni á miðvikudag að al-Qaeda hefði búið sér til öruggt skjól við landamæri Pakistan.

Ekkert hefur heyrst frá Bin Laden í meira en ár en aðstoðarmaður hans Ayman al-Zawahiri hefur sent frá sér nokkur skilaboð á undanförnum vikum. Fyrir fáeinum dögum hvatti hann Pakistana til að rísa upp gegn Musharraf forseta landsins til að hefna uppreisnarmanna sem létust í Rauðu Moskunni í Islamabad.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×