Erlent

Vinsældir Bush aldrei minni

Mótmæli gegn Íraksstefnunni. Víða um Bandaríkin mátti sjá fólk mótmæla nýju Íraksstefnunni á fimmtudagskvöldið. Þessi mynd var tekin í Detroit í Michigan.
Mótmæli gegn Íraksstefnunni. Víða um Bandaríkin mátti sjá fólk mótmæla nýju Íraksstefnunni á fimmtudagskvöldið. Þessi mynd var tekin í Detroit í Michigan. MYND/AP

Mótmælafundir gegn Íraksstefnu George W. Bush Bandaríkjaforseta voru haldnir víða í stórborgum Bandaríkjanna á fimmtudagskvöldið. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem AP fréttastofan lét gera, náðu vinsældir Bush enn nýju lágmarki meðal bandarísku þjóðarinnar, nú þegar hann hefur kynnt áherslubreytingar sínar í Íraksstríðinu.

Um 32 prósent þjóðarinnar eru ánægð með störf hans. Jafnmargir, eða um 32 prósent, eru síðan ánægðir með störf Bandaríkjaþings, sem hefur lýst andstöðu við áform forsetans um að fjölga hermönnum í Írak.

Þau Condoleezza Rice utanríkisráðherra og Robert Gates varnarmálaráðherra máttu sitja undir harðri gagnrýni af hálfu bæði demókrata og repúblikana þegar þau mættu á fund þingnefnda bæði í öldungadeild og fulltrúadeild til að ræða Íraksstefnuna.

Demókratar á þingi ætla að bera nýju Íraksstefnuna undir atkvæði þingsins innan fárra vikna.

Rice hélt í gær af stað til Mið-Austurlanda þar sem hún ætlar að kynna nýju Íraksstefnuna fyrir ráðamönnum, og byrjar á Palestínumönnum. Þá er Hillary Clinton, öldungadeildarþingmaður og líklegur forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, á leið til Íraks ásamt tveimur öðrum bandarískum þingmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×