Erlent

Umhugsunartími liðinn

Þýska ríkisstjórnin og framkvæmdastjórn ESB stilla sér upp saman fyrir ljósmyndarana. Merkel kanslari og Barroso forseti fremst fyrir miðju.
Þýska ríkisstjórnin og framkvæmdastjórn ESB stilla sér upp saman fyrir ljósmyndarana. Merkel kanslari og Barroso forseti fremst fyrir miðju. mynd/ap

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, lýsti því yfir í vikunni að „umhugsunartíminn“ væri liðinn sem leiðtogar Evrópusambandsins gáfu sér til að íhuga hvað gera skyldi við stjórnarskrársáttmála sambandsins eftir að fullgildingu hans var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslum í Frakklandi og Hollandi snemmsumars 2005.

Þýska stjórnin tók við formennskunni í ESB um áramótin og hefur sett sér það markmið að koma sáttmálanum „aftur á flot“ eftir strandið í þjóðaratkvæðagreiðslunum. Merkel viðurkenndi að það væri í mikið ráðist, þar sem samþykki allra aðildarþjóðanna n markmiðið stæði að koma saman áætlun um endurlífgun sáttmálans fyrir lok formennskumisserisins um mitt árið. Átján af aðildarríkjunum 27 hafa þegar fullgilt sáttmálann.

Merkel vill að samstaða hafi náðst um nýja uppfærslu stofnsáttmála sambandsins, hvort sem hún verður kennd við stjórnarskrá eða ekki, fyrir næstu kosningar til Evrópuþingsins árið 2009. Í sjónvarpsviðtali sagði Merkel að hún vildi leggja hinn fyrirliggjandi sáttmála til grundvallar. „Við munum ráðfæra okkur við hvert og eitt aðildarríki og finna út úr því hvaða atriði það eru sem þau hafa athugasemdir við og hvaða væntingar og óskir þau hafa hvert fyrir sig um breytingar. […] Við ætlum ekki að byrja frá grunni. Ég tel að það væri alrangt,“ sagði kanslarinn.

Í ljósi þess að forsetakosningar fara fram í Frakklandi í vor og forsætisráðherraskipti verða í Bretlandi á árinu væntir Merkel þess ekki að afgerandi ákvarðanir um þessi mál verði tekin fyrr en á formennskumisseri Frakka á næsta ári. En þegar þar að kæmi „ættum við að hafa leyst vandamálin þannig að Evrópa [les: Evrópusambandið] geti látið verkin tala,“ sagði kanslarinn eftir viðræður í Berlín við Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB.

Framkvæmdastjórnin átti samráðsfund með þýsku ríkisstjórninni til að fara yfir dagskrá ESB á formennskumisseri Þjóðverja, en hefð er fyrir slíkum samráðsfundum við upphaf hvers formennskumisseris.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×