Erlent

Hundrað létust í sprengjuárás

Í það minnsta 105 létust og 225 særðust í gær í einni mannskæðustu árás sem gerð hefur verið í Bagdad frá því að Íraksstríðið hófst. Sjálfsvígssprengjumaður í vöruflutningabíl sprengdi sjálfan sig á Sadriya-útimarkaðinum í hverfi sjía í miðborginni og olli gríðarlegri eyðileggingu.

Öll sjúkrahús borgarinnar fylltust strax í kjölfar árásarinnar, sem var gerð nokkrum stundum eftir að áhrifamesti sjíaklerkur landsins hafði hvatt til stillingar og friðar í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×