Erlent

Chewbacca handtekinn fyrir skallaárás

Chewbacca
Chewbacca

Maður, klæddur sem Chewbacca úr Star Wars var handtekinn í Hollywood á fimmtudag eftir að hafa skallað leiðsögumann.

Lögreglunni barst tilkynning um það að maðurinn, hinn 44 ára Frederick Evan Young, ætti í útistöðum við leiðsögumann, Brian Sapir, sem hafði beðið Young að hætta að „áreita og snerta“ ferðamenn í trássi við lög og reglur. Sprakk Young þá úr bræði, skallaði Sapir og sagði: „Það segir enginn þessum wookie fyrir verkum,“ en Chewbacca var af svokallaðri wookie-dýrategund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×