Erlent

Að minnsta kosti 20 látnir

Að minnsta kosti 20 manns létust í miklu óveðri sem gekk yfir Flórída í fyrrinótt. Ríkisstjórinn í Flórída, sem fór um hamfarasvæðið í gær, lýsti ástandinu þannig að það væri eins og sprengja hefði sprungið á svæðinu.

Hundruð íbúðarhúsa, fyrirtækja og kirkna eru í rúst og mikið uppbyggingarstarf er framundan í þeim fjórum sýslum sem urðu fyrir barðinu á óveðrinu. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hversu mikið tjón varð. Ríkisstjórinn ræddi við George W. Bush forseta í gær um aðstoð frá ríkisstjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×