Erlent

Pakistanar prófa langdræga eldflaug

Pakistanski herinn greindi frá í dag að tilraunir með langdræga eldflaug sem borið getur kjarnaodd hefðu tekist vel. Flauginn var prófuð í dag en hún getur dregið allt að tvö þúsund kílómetra.

Meðal þeirra sem fylgdust með tilrauninni var yfirmaður herforingjaráðs landsins sem sagði tilraunina mikilvægan áfanga fyrir Pakistan í þeirri viðleitni að ná jafnvægi og friði í Suður-Asíu. Töluverð spenna var á milli Pakistana og Indverja um síðustu aldamót og árið 1998 gerður báðar þjóðir tilraunir með kjarnorkuvopn. Þá munaði litlu að stríð brytist út á milli þjóðanna árið 2002 en síðustu ár hafa samskiptin batnað til muna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×